Vönduð dagbók fyrir árið 2023 sem hentar vel fyrir nám, vinnu, daglegt líf og undirbúning stórra og lítilla verkefna.
Bókin er höfundaverk Sólrúnar Diego og fallega hönnuð af Þorbjörgu Ólafsdóttur hjá Farva. Þetta er í þriðja sinn sem Sólrún Diego gefur út dagbók, en þær hafa notið mikilla vinsælda og selst upp.
Dagbókin er einkar þægileg í notkun og nýtist vel við að einfalda verkefni og ráðstafa tímanum betur. Við hverja viku ársins eru listar fyrir markmið og hugmyndir, ásamt habit tracker sem hjálpar þér að innleiða góðar venjur.
Í bókinni er að finna alla helstu gátlista Sólrúnar Diego úr bókunum Heima (2017) og Skipulag (2020). Listarnir nýtast einkar vel við að skipuleggja allt frá vikulegum þrifum og matarboðum yfir í undirbúning brúðkaups.
Á meðal gátlista í bókinni:
Fjölskyldan og heimilið
- Vikuleg þrif
- Árstíðaþrif
- Flutningsþrif
- Jólagjafalisti
- Jóladagatal
- Pökkunarlistar fyrir ferðalög
- Gátlisti fyrir útileguna
- Gátlisti fyrir sumarbúðstað
- Tímalínur
Veislur og viðburðir
- Matarboð
- Afmæli
- Barnaafmæli
- Steypiboð
- Skírn og nafnaveisla
- Ferming
- Útskrift
- Gæsun og steggjun
- Brúðkaup